Enginn leikur Laugardaginn 3 nóvember viđ Ţrótt
Þeir hættu við að koma vegna þess að það er vetrarfrí í skólum í Reykjavík og þeir gátu ekki mannað lið hingað..Ćfingatímar
Mánudaga kl. 21:00-22:30
Miðvikudaga kl. 20:30-21:30
Fimmtudaga kl. 20:00-22:30
Drullisti svo til að mæta á æfingar og engann aumingjaskap

Reynum svo að mæta svolítið fyrir æfingar og vera tilbúnir þegar æfingin byrjar

Ćfingatímar
Jepsí þá eru æfingatímarnir í vetur komnir inná síðuna og eru undir þeim fagra hlekk "æfingatímar". Þar má sjá æfingatíma hjá 3., 4. og meistaraflokk. Held að þetta sé allt rétt hjá mér, annars bara commeniði og ég leiðrétti þetta. Gríðarlega spennandi..Later..
ég vill, mig langar, mér langar, manni langar!
Er ég sá eini sem er bókstaflega að drepast úr löngun til að komast í handbolta í þessu helvítis fokkin handboltaliði!Hvenær byrja handboltaæfingar ef þær byrja og ef þær byrja ekki vill ég að þær fari að byrja bráðum því það er vonlaust að hafa ekki handboltaæfingar sem er ekki einu sinni byrjaðar..
er það ekki?
ástarkveðja: Kristófer Nökkvi Sigurðsson
Lokahóf meistaraflokks
Lokahóf hjá meistaraflokk Hattar í handbolta karla fór fram fyrir örstuttu síðan eða 18. maí síðastliðinn. Mikið var um dýrðir enda árangur vetrarins gríðargóður.
Liðið tók í fyrsta skipti þátt í Íslandsmóti í ár og endaði þegar upp var staðið óvænt á botni deildarinnar. Liðinu tókst þó að sigra leik og var það gert í lokaumferðinni svona til þess að rífa aðeins upp stemninguna fyrir lokahóf deildarinnar, en hún átti að sjálfsögðu alltaf að vera hápunktur leiktíðarinnar. Og það tókst! Mikið var lagt í lokahófið þar sem margt var á prjónunum og allt tókst með eindæmum vel enda var skipulagning hátíðarinnar með afbrigðum góð.
Menn mættu á svæðið með góða skapið að liði, en svæðið var að þessu sinni hinn mikli Ding-Dong staður í miðbæ Egilsstaða. Þar snæddu menn dýrindis máltíð sem innihélt m.a. nýbakað og ilmandi brauð ásamt ýmsu kjöti og ýmsu grænmeti og öðru. Algott eins og ákveðinn maður nefndi það. Nú einnig hafði "sektarsjóðnum" verið vel varið í "mjólkurbúðinni" þar sem keyptur var hellingur af gosi. Myndashow var sett upp á vegg en myndirnar voru teknar í nokkrum af kappleikjum vetrarins af alþekktum ljósmyndara sem tók myndirnar á vél sem er með þeim fremstu í heiminum í dag. Aðrar græjur voru einnig kauptar til þess að myndirnar kæmust sem best til skila og má segja að skýrleiki myndanna hafi verið óhuganlegur! Hið heimsfræga skáld Kembe Jones las einnig uppúr einni af ljóðabókum sínum, sannkallaður alheimsviðburður sem þar fór fram við mikinn fögnuð þeirra sem heyrðu. Einnig voru nokkrir heimsfrægir Dj-ar mættir á svæðið, nægir þar að nefna Dj-KallaBen DobraChen og Dj-McHafthorarinsson.
Til að toppa þetta allt saman var svo mættur á svæðið einn fremsti íþróttamaður Íslendinga til að heiðra Hattarmenn með nærveru sinni, en þetta var að sjálfsögðu Hreiðar Levý Guðmundsson landsliðsmarkvörður í handknattleik, en Hreiðar var einkar virðulegur þetta kvöld!
Veittar voru viðurkenningar fyrir frammistöðu vetrarins en Kristófer Nökkvi var valinn Hattari ársins fyrir ástundun/framfarir/viðleitni og annað slíkt. Stefán Andri var valinn efnilegasti leikmaðurinn fyrir að vera efnilegur og Stefán Guðnason var valinn besti leikmaður Hattar í nýliðnu tímabili fyrir að vera bestur og verja 16 skot í hverjum leik sem er met. Einnig er rétt að minnast á að Óðinn Stefánsson var langmarkahæsti leikmaður liðsins með hvorki meira né minna en 111 mörk í 16 deildarleikjum sem er gríðargóður árangur!
McHaffi telur þó að um samsæri hafi verið að ráða eins og eftirfarandi orð gefa til kinna en þetta er tekið af heimasíðu hans - ,,En já, skemmtileg helgi að baki. Lokahóf hanknattleiksdeildarinnar var haldið á föstudaginn. Þar voru veittir þrír samúðarbikarar fyrir menn í minnihlutahópi.Stefán Andri fékk bikar fyrir að vera örvhentur
Kristófer fékk bikar af sömu ástæðum
Einnig var Stebba Guðna veittur bikar fyrir að vera ofvaxinn
Mér finnst samt frekar leiðinlegt að skilja Einar "með fokking gleraugun" Benediktsson svona útundan en hann var eini örvhenti maðurinn sem hlaut ekki fyrrnefndan samúðarbikar."
Hér má svo sjá betur hvað gekk á á þessu magnaða kvöldi í myndmáli..
McHaffi og Leibbi skemmtu sér ákaflega vel!
Kristó var Hattari ársins og átti það vel skilið!
Stefán Andri var efnilegasti leikmaðurinn
Stefán Guðnason sem kom að láni fyrir tímabilið frá Akureyri var besti leikmaður Hattar á tímabilinu og sá stærsti.
Bikarhafar kvöldsins voru kampakátir og drukku gos úr bikörum sínum..
Hinn mikli ljóðalesari og skáld Kembe Jones skemmti líðnum með skemmtilegum skeytlum..
Dj- Kalli Ben Dobra Chen var með taktana á hreinu og hélt uppi gríðarlegu stuði
og Gunni var svo sannarlega í stuðinu!
Gosið fór ekki jafn vel í alla og Geisli lenti í smá vandræðum með Breezerinn sinn, hann var þó fljótur að rífa sig upp aftur og dansaði eins og óður væri!
Sven eða þýska stálið eins og hann er jafnan kallaður mætti og var sprækur ásamt því að Atli greip í gítarinn
Haffa var hætt að lítast á Ding-Dong staðinn svo haldið var á Hetjuna þar sem menn skemmtu sér fram eftir kvöldi !
Fleiri myndir eru undir liðnum "myndirnar góðu" sem menn geta kíkt á.
Annars vil ég bara nota tækifærið og þakka öllum sem komu að æfingum, leikjum eða öðru á tímabilinu fyrir skemmtilegan vetur og fantagott lokahóf!
El Capitan
Líklegast ný könnun
Úrslit seinustu könnunar voru eftirfarandi:Leikmaður vikunnar á móti Víking/Fjölni var klárlega..
20. apríl 2007
Kembe Jones ( 3% / 2 atkvæði )
Helvítis Súkkulaðimúsin ( 5% / 4 atkvæði )
Kalli Ben ( 3% / 2 atkvæði )
Pétur Gísla ( 16% / 12 atkvæði )
Dáni gat ekkert en er klárlega maður vikunnar!! ( 43% / 32 atkvæði )
Erlendsson ( 3% / 2 atkvæði )
Spálmi ( 12% / 9 atkvæði )
Gunni grófi ( 4% / 3 atkvæði )
Stebbi Gé ( 7% / 5 atkvæði )
Huginn De Goy ( 4% / 3 atkvæði )Dáni var semsagt mjög líklega maður vikunnar...
Ný könnun mætt á svæðið!
Lokahóf man
Já góðan daginn!!
Á dögunum fyrir nokkrum dögum fóru fram lokahóf bæði hjá 4.fl og mfl. Hattar í handbolta. Fyrst var haldið lokahóf hjá 4. flokknum þar sem tekin var létt æfing og léttur æfingaleikur sem endaði þó í leiðinlegri kantinum! En svo skelltu menn sér í betra skapið og í Hettuna góðu þar sem flatbökur voru í hávegum hafðar. Glatt var á hjalla og að lokum voru svo veitt nokkur verðlaun.
Herra Siggi var valinn vælari/skælari ársins og fékk stóran bikar að verðlaunum fyrir það....hann fékk þó ekki að halda bikarnum og vældi e-ð aðeins í kjölfarið. Brynjar fékk einnig verðlaun og fékk hann meira að segja að halda sínum bikar sem hann fékk fyrir að vera Hattari ársins, en sá bikar er veittur fyrir ástundun/framfarir og góða viðleitni yfir höfuð. Efnilegasti leikmaður 4.flokks var að mati þjálfara enginn annar en Benni eða Lambi. Lambi átti gott season og skoraði ófá mörkin enda er kappinn óhugnalega stór (og eiginlega leiðinlega stór) þrátt fyrir að vera aðeins í 9. bekk ! Nú besti leikmaður 4.flokks var svo einnig valinn og reyndist sá kappi einnig vera sveitamaður líkt og Lambi. Einir heitir sá kappi en hann hefur einnig verið fyrirliði liðsins í ár og staðið sig með miklum sóma. Kappinn sá var bæði lykilmaður í sókn sem vörn liðsins enda var hann ávalt með markahærri mönnum ásamt því að berjast í miðri 6-0 vörn okkar manna.
Hér má sjá mynd af þremeningunum sem fengu að halda bikörum sínum...(Benni, Brynjar og Einir)
Lokahóf 4. flokks..
..verður núna á miðvikudaginn næsta (16. maí (á morgun)) strax eftir æfingu sem byrjar kl. 20:00. Þar verða nokkrar flatbökur á matseðlinum ásamt því sem nokkrir verða verðlaunaðir fyrir verk vetrarins.Á æfingunni verður svo líklega tekinn æfingaleikur gegn úrvalsliði Pésa þar sem gamanið verður í fyrirrúmi og vonandi mæta nú sem flestir!
Coach Carter
Mac Haffi... áđur en hann fór útí atvinnumennsku í handbolta
Já, Mac Haffi er ekki allur þar sem hann er séður skal ég segja ykkur..http://www.carmex-kiss.de/index.php?meintanz=264612762344
Var að vafra um á netinu og fann einhverja grein um Mac Haffa á http://www.bestdancers.com/ þar var þetta video í topp 10 listanum.. Vel gert Haffi
Þetta er merkilegt..

Kv. Keli Káti kall
Ath. Hljóðið er Must